Skip to product information
1 of 1

Hinn launhelgi glæpur - Kynferðisbrot gegn börnum

Hinn launhelgi glæpur - Kynferðisbrot gegn börnum

Regular price 5.390 ISK
Regular price Sale price 5.390 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

 

Hinn launhelgi glæpur

-Kynferðisbrot gegn börnum- Ritstjóri: Svala Ísfeld Ólafsdóttir

Út er komin bókin Hinn launhelgi glæpur. Hún er framlag til umræðu um kynferðisbrot gegn börnum og skerfur til frekari skilnings á orsökum þeirra og afleiðingum. Í bókinni er á þriðja tug greina, flestar ritrndar, þar sem fjallað er um viðfangsefnið á forsendum ólíkra fræðigreina, svo sem lögfræði, læknisfræði, hjúkrunarfræði, félagsfræði, sálarfræði, uppeldisfræði, afbrotafræði og félagsráðgjafar. Bókin ntist við kennslu á háskólastigi á msum sviðum félagsvísinda og lögfræði auk þess að vera handbók fyrir alla sem starfa að málefnum barna og láta sig velferð þeirra varða.

Bókinni er skipt í þrjá hluta. Fyrst er fjallað um löggjöf og meðferð kynferðisbrota gegn börnum og er þar um að ða viðamestu lögfræðilegu úttekt á þessum brotaflokki í íslenskum fræðiritum til þessa. Síðan er fjallað um þolendur kynferðislegrar misnotkunar, einkum hinar alvarlegu afleiðingar sem brotin hafa á heilsu þeirra og líðan. Þar er m.a. greinagerð um áður óbirtar íslenskar rannsóknir á afleiðingum og tíðni þeirra. Loks er fjallað um gerendur og gerð grein fyrir rannsóknum á ástæðum þess að einstaklingar misnota börn kynferðislega og möguleg úrræði til að sporna gegn slíkri háttsemi.

Ritstjóri bókarinnar og meðhöfundur er Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent í refsirétti og afbrotafræði við lagadeild Háskólans í Reykjavík.


Formála ritar Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dóms- og mannréttindaráðherra.

Fyrsti þáttur – Löggjöf og málsmeðferð

  • Alþjóðaskuldbindingar um vernd barna gegn kynferðisofbeldi – Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík

  • Refsiákvæði sem varða kynferðisbrot gegn börnum – Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík

  • Rannsókn kynferðisbrota gegn börnum – Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu

  • Meginreglur sönnunarfærslu og kynferðisbrota gegn börnum – Símon Sigvaldason héraðsdómari

  • Refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum – Ragnheiður Bragadóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands

  • Miskabætur fyrir kynferðisbrot gegn börnum – Hjörtur O. Aðalsteinsson, dómstjóri við Héraðsdóm Suðurlands

    Annar þáttur – Þolendur

  • Ofbeldi gegn börnum fyrr og nú: Áhrif á heilsu og vellíðan – Geir Gunnlaugsson landlæknir

  • Börn þvinguð til kynlífs – Rannsókn á kynferðislegri misnotkun á börnum – Hrefna Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og lektor við Háskóla Íslands

  • Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum sem áhættuþáttur tilfinninga- og hegðunarvandamála – Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, sálfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík

  • Gleymt en geymt: Langtímaafleiðingar kynferðisofbeldis gegn ungum börnum – Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir

  • Þögul þjáning: Samanburður á áhrifum kynferðisofbeldis í bernsku á heilsufar og líðan íslenskra karla og kvenna – Sigrún Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og Sigríður Halldórsdóttir, prófessor viðheilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri

  • Hugræn atferlismeðferð fyrir börn með áfallastreituröskun í kjölfar kynferðisofbeldis – Berglind Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sjöfn Evertsdóttir, sálfræðingur

  • Að byggja brr: Barnvænleg og þverfagleg málsmeðferð kynferðisbrota gegn börnum – Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu

  • Barnahús – Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur

  • Neyðarmóttaka vegna nauðgunar – Guðrún Agnarsdóttir læknir og Eyrún

    B. Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur

  • „Að lifa af”: Saga þolanda kynferðisofbeldis – Thelma Ásdísardóttir,

    stofnandi samtakanna Drekaslóð

  • Það er eins og þeir séu í herberginu og hvetji til ofbeldis gegn mér”: Netið

    og vernd barna gegn kynferðisofbeldi – Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi og Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum – Save the Children á Íslandi

  • Forvarnarsamtökin Blátt áfram – Sigríður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Blátt áfram

  • Góð og slæm leyndarmál: Forvarnateiknimynd fyrir börn um kynferðisofbeldi – Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur og stjórnarformaður í félagasamtökunum Réttindi barna

Þriðji þáttur – Gerendur

  • Afstaða Íslendinga til kynferðisbrota: Óttinn við hættulega og ókunna gerendur – Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands

  • Sálfræðilegt mat og meðferð ungra gerenda kynferðisbrota – Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra

  • Umfang kynferðisbrota gegn börnum: Mat á gerendum og meðferð Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun og Þórarinn Viðar Hjaltason, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun

  • Í fjötrum fortíðar: Fangi númer 898648 – Aron Pálmi Ágústsson


Product features

Materials and care

Merchandising tips

View full details
Your cart
Product Product subtotal Quantity Price Product subtotal
Hinn launhelgi glæpur - Kynferðisbrot gegn börnum
Hinn launhelgi glæpur - Kynferðisbrot gegn börnum
Hinn launhelgi glæpur - Kynferðisbrot gegn börnum
5.390 kr/ea
0 kr
5.390 kr/ea 0 kr