Ritrýnireglur Úlfljóts
Ritrýnireglur vefritsins
Fræðilegar greinar eru einungis birtar að lokinni ritrýni. Ritrýninefnd Úlfljóts metur innsendar greinar og gerir strangari kröfur til vefefnis en til efnis í prentaða tölublaðinu.
1 Efni greina
Vefritið tekur við dómaklausum, fræðilegum vangaveltum um lögfræðileg álitaefni og rökstuddum skoðunum á úrbótum í réttarfari. Greinar þurfa að fela í sér eitthvað nýtt og stuðla að aukinni umræðu og áhuga almennings og fjölmiðla á lögfræði.
2 Lengd og framsetning
Æskilegt er að greinar séu skarpar og hnitmiðaðar, um 1.500–3.500 orð að lengd.
3 Óritrýnt efni
Einnig er tekið við óritrýndu efni, t.d. hugleiðingum um málefni líðandi stundar, að því gefnu að þær séu studdar lögfræðilegum og efnislegum rökum.
Senda inn grein → sas125@hi.is
Nánari upplýsingar má finna á ulfljotur.com.





