Skip to product information
1 of 1

Hvenær má skerða eignarrétt?

Hvenær má skerða eignarrétt?

Regular price 15.900 ISK
Regular price Sale price 15.900 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

Í þessu riti er leitast við að svara þeirri spurningu hvernig takmarka megi eignarréttindi á lögmætan hátt samkvæmt íslenskum rétti. Höfundur leiðir lesandann í gegnum helstu hugtök eignaréttarins, skýrir frá stjórnskipulegri vernd eignarréttar samkvæmt stjórnarskrá, mannréttindasáttmála Evrópu og EES-rétti og sýnir hvernig þessar stoðir standa sameiginlega vörð um eignarrétt hér á landi.

Bókin setur fram nýja, einfaldari nálgun við mat á eignarskerðingum með því að byggja á fimm skilyrðum sem ráða því hvort takmörkun á eignarrétti telst heimil: lögmæti, markmiði í almannaþágu, meðalhófi, svigrúmi til mats og jafnræði. Með því verður auðveldara að framkvæma kerfisbundið mat á réttmæti eignarskerðinga og tryggja að jafnvægi ríki á milli réttinda einstaklinga og hagsmuna samfélagsins.

Í ritinu eru dregin fram mörg hagnýt dæmi úr réttarframkvæmd, meðal annars um eignarskerðingar vegna efnahagsstjórnar, skattlagningar, kerfisbreytinga á atvinnuvegum, bótakerfum o.fl. og aðgerða tengdum fasteignum. Einnig er fjallað um þau réttarúrræði sem borgararnir hafa til að verja eignarrétt sinn, bæði fyrir innlendum dómstólum og á vettvangi Mannréttindadómstóls Evrópu og EFTA-dómstólsins.

Þótt ritið hafi  að geyma fræðilegt framlag til stjórnskipunarréttar og mannréttinda getur það einnig meðal annars gagnast eigendum, starfandi lögfræðingum og lögmönnum, starfsmönnum handhafa ríkisvaldsins sem fást við undirbúning löggjafar, lagasetningu, framkvæmd löggjafar og að dæma um eignarskerðingar. Þá á ritið erindi við almenning því eignarskerðingar koma oft við sögu í samfélags- og stjórnmálaumræðu.

Valgerður Sólnes er prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands. Hún lauk B.A. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands 2007, meistaragráðu frá sama skóla 2009 og LL.M. gráðu frá Fordham-háskóla 2010. Doktorsritgerð hennar (Ph.D.) við Lagadeildir Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla 2018 var á sviði eignaréttar og mannréttinda. Helstu kennslugreinar hennar eru á sviði fjármunaréttar og hún hefur ritað fjölmargar greinar á ýmsum sviðum lögfræðinnar.

Product features

Materials and care

Merchandising tips

View full details
Your cart
Product Product subtotal Quantity Price Product subtotal
Hvenær má skerða eignarrétt?
Hvenær má skerða eignarrétt?
Hvenær má skerða eignarrétt?
15.900 kr/ea
0 kr
15.900 kr/ea 0 kr