Vefrit Úlfljóts

Vefrit Úlfljóts var stofnað í tilefni 70 ára afmælis Úlfljóts árið 2017. Því er ætlað að stuðla að aukinni þátttöku lagadeildar Háskóla Íslands í opinberri umræðu og að styrkja stöðu deildarinnar sem virks þátttakanda í lýðræðislegu samfélagi. Vefritið skapar auðvelt aðgengi almennings og fjölmiðla að skýrri og hnitmiðaðri umfjöllun um lögfræði. Það opnar að auki leið fyrir lögfræðinga, sem ekki hafa tíma til rannsóknarstarfa og skrifa á löngum fræðigreinum, til að koma fræðilegu áliti, greiningu eða hugmyndum sínum á framfæri.

Nýjustu greinar og eldra efni frá vefritinu má finna á ulfljotur.com.