Skilmálar
Almennir skilmálar
Pantanir
Úlfljótur áskilur sér rétt til að hafna eða fella niður pantanir, meðal annars vegna rangra verðupplýsinga, tæknilegra mistaka, birgðastöðu eða annarra ófyrirséðra atvika. Jafnframt áskilur Úlfljótur sér rétt til að hætta sölu einstakra vara án fyrirvara. Eftir atvikum kann að vera óskað eftir staðfestingu pantunar símleiðis eða með tölvupósti áður en hún er afgreidd.
Afhending vöru
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Sé vara ekki til á lager verður kaupanda tilkynnt um það án ástæðulauss dráttar og veittar upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma eða aðra mögulega lausn.
Skipti og skil
Kaupandi getur skilað vöru innan 14 daga frá móttöku hennar, enda sé framvísað sönnun fyrir kaupum.
Til þess að skil verði samþykkt þarf varan að vera ónotuð, í fullkomnu ástandi og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum. Sé vara innsigluð má innsiglið ekki hafa verið rofið.
Við skil á vöru er almennt miðað við kaupverð hennar. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd nema lög kveði á um annað.
Persónuvernd
Úlfljótur leggur ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga. Allar upplýsingar sem kaupandi veitir í tengslum við viðskipti eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og unnið með þær í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Upplýsingar verða hvorki afhentar né seldar þriðja aðila nema það sé nauðsynlegt vegna framkvæmdar viðskiptanna eða skylt samkvæmt lögum.
Governing Law / Jurisdiction
These Terms and Conditions are governed by the laws of Iceland.
Lög og varnarþing
Um skilmála þessa og viðskipti samkvæmt þeim gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um túlkun eða framkvæmd þeirra skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, nema lög mæli fyrir um annað.
Fyrirspurnir
Hafir þú fyrirspurnir eða ábendingar er þér velkomið að hafa samband við okkur á ulfljotur@ulfljotur.is.