{"product_id":"stjornskipunarrettur-undirstodur-og-handhafar-rikisvalds-2-utgafa","title":"Stjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds, 2. útgáfa","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eBókin \u003c\/span\u003e\u003cem\u003eStjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds \u003c\/em\u003e\u003cspan\u003eeftir Björgu Thorarensen er komin út í 2. útgáfu. Hún kom fyrst út árið 2015 en hefur verið uppseld síðustu ár. Bókin er grundvallarrit um almennan hluta stjórnskipunarréttar, undirstöður og einkenni stjórnskipunar Íslands, meðferð ríkisvalds og takmörk þess. Fjallað er um grunnhugtök og kenningar sem stjórnskipunin hvílir á og hvernig þær birtast í störfum handhafa ríkisvalds. Rannsóknin beinist einkum að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33\/1944, forsögu hennar, inntaki og túlkun. Í fyrri hluta ritsins er sjónum beint að undirstöðum og einkennum stjórnskipulagsins. Ítarlega er lýst áhrifum alþjóðasamvinnu á íslenskan rétt og stjórnskipun á síðustu áratugum, einkum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Mannréttindasáttmála Evrópu. Í síðari hlutanum er sýnt fram á hvernig hugmyndafræðilegar undirstöður birtast í störfum æðstu handhafa ríkisvalds. Gerð er grein fyrir stjórnskipulegri stöðu og störfum Alþingis, ríkisstjórnar og ráðherra og forseta Íslands. Þá er rannsakað hvernig eftirlit og aðhald með ríkisvaldi birtist. Dómaframkvæmd er rakin með áherslu á eftirlitshlutverk dómstóla til að tempra vald annarra handhafa ríkisvalds.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":58748338208928,"sku":null,"price":16490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/IMG-6703.jpg?v=1787267655","url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/products\/stjornskipunarrettur-undirstodur-og-handhafar-rikisvalds-2-utgafa","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}