{"product_id":"rettarkerfi-evropusambandsins-og-evropska-efnahagssvaedisins","title":"Réttarkerfi Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Sigurður Líndal og Skúli Magnússon\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin hefur að geyma stutta og aðgengilega lýsingu á meginatriðum réttarskipunar Evrópusambandsins (ESB) og Evrópska efnahagssvæðisins (EES) án þess að gert sé ráð fyrir sérstakri kunnáttu eða undirbúningi lesandans. Í umfjölluninni er tekið mið af þeim breytingum sem orðið hafa á regluverki ESB eftir gildistöku Lissabonsáttmálans þann 1. desember 2009. Áhersla er lögð á þau atriði sem lúta að stjórnskipun, grundvallarreglum og stofnunum ESB og EES. Víða er vikið að efnisreglum með dæmum, einkum reglum um innri markað ESB.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin hefur meðal annars verið samin með það fyrir augum að geta nýst sem kennsluefni í grunnnámskeiðum um ESB- og EES-rétt. Texti bókarinnar skiptist í meginmál og ítarefni til þess að gera hann aðgengilegri. Vísað er til valdra heimilda og ítarefnis (með áherslu á efni á íslensku) í lok hvers kafla og þar er einnig að finna spurningar til upprifjunar og umræðu, sem bæði geta nýst við kennslu og við prófundirbúning.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":36173368656032,"sku":"","price":3700.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/rettarkerfi-199x300.jpg?v=1599741669","url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/products\/rettarkerfi-evropusambandsins-og-evropska-efnahagssvaedisins","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}