{"product_id":"afmaelisrit-markus-sigurbjornssonar","title":"Afmælisrit Markús Sigurbjörnssonar","description":"\u003cp\u003eHinn 25. september 2024 varð Markús Sigurbjörnsson sjötugur. Eftir að hafa í skamman tíma verið fulltrúi, fyrst hjá bæjarfógetanum í Keflavík, Grindavík og Njarðvík og sýslumanninum í Gullbringusýslu og síðan við embætti yfirborgarfógetans í Reykjavík, var Markús skipaður borgarfógeti árið 1985. Því embætti gegndi hann til ársins 1988 þegar hann varð prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, þar sem hann sinnti einkum kennslu og rannsóknum í réttarfari. Hann var svo skipaður í embætti hæstaréttardómara 1. júlí 1994 og gegndi því um liðlega 25 ára skeið.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMeðfram störfum sínum við Háskóla Íslands vann hann að samningu lagafrumvarpa sem síðar urðu grundvöllur nýrrar réttarfarslöggjafar sem enn í dag er að mestu óbreytt. Markús var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Háskóla Íslands 6. október 2021.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFáir lögfræðingar, ef nokkur, hafa haft viðlíka áhrif og Markús á þróun íslensks réttar á síðustu áratugum, ekki síst á sviði réttarfars. Í tilefni af þessum tímamótum hafa nokkrir vinir og samferðarmenn Markúsar ákveðið að gefa út afmælisrit honum til heiðurs.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53168277029024,"sku":null,"price":13990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/markusarbok_990x_1693241c-c9a5-42ad-91e2-4fef60c377e4.webp?v=1783634286","url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/products\/afmaelisrit-markus-sigurbjornssonar","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}