{"product_id":"afbrot-og-refsiabyrgd-i","title":"Afbrot og refsiábyrgð I - eftir Jónatan Þórmundsson","description":"\u003cp\u003eAfbrot og refsiábyrgð I–III eru grundvallarrit um hinn almenna hluta refsiréttar. Fyrsta bindið kemur nú út endurskoðað, verulega aukið og endurbætt. Inn í efni þess er fléttað víðtækri þróun í íslenskri refsilöggjöf og dómaframkvæmd síðustu tvo áratugi, m.a. með vaxandi alþjóðavæðingu landsréttar á grundvelli fjölmargra þjóðréttarsamninga. Ritið er í senn yfirgripsmikið fræðirit, aðgengilegt kennslurit og handhægt uppsláttarrit.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBindið skiptist í níu efnishluta. Þar er m.a. fjallað um hið almenna og rýmkaða afbrotahugtak, flokkun afbrota, jafnt hefðbundinna sem nýrra brotategunda, athafnabrot og athafnaleysisbrot, tilraun til afbrota og afturhvarf, hlutdeild í afbrotum og samverknað. Loks eru veigamiklir þættir um refsiheimildir og skýringu refsilaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur er prófessor emeritus og heiðursdoktor við lagadeild Háskóla Íslands. Hann varð prófessor árið 1970, hefur stundað fræðistörf og kennslu í lögfræði og gefið út fjölda fræðibóka og ritgerða. Hann hefur lagt áherslu á almennan og sérstakan hluta refsiréttar svo og einstök svið hans. Einnig hefur hann fengist við skattarétt, sakamálaréttarfar og afbrotafræði. Á síðari árum hefur höfundur lagt rækt við alþjóðlegan refsirétt, gefið út fræðirit og séð um kennslu í greininni allt til þessa dags.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35796250132640,"sku":"","price":8990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/afbrot_og_refsiabyrgd.jpg?v=1723826532","url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/products\/afbrot-og-refsiabyrgd-i","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}