{"title":"Nýjustu bækurnar","description":"","products":[{"product_id":"evropurettur-kennslurit","title":"Evrópuréttur kennslurit","description":"\u003cp\u003eKennslurit ætlað til kennslu í Evrópurétti við lagadeildir háskóla á Íslandi. Höfundar: Margrét Einarsdóttir, Gunnar Þór Pétursson og Ómar Berg Rúnarsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51589877858464,"sku":"","price":8595.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/CleanShot2024-08-26at18.54.35_2x_533x_bdebce15-dfad-4607-b705-db92fef468d0.webp?v=1783634436"},{"product_id":"eignarettur-3-nyting-audlinda-og-fleiri-rettarreglur-tengdar-fasteignum","title":"Eignaréttur III - nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignum","description":"\u003cp\u003eRitið Eignaréttur III – Nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignumer það þriðja í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I – Almennur hluti og árið 2023 Eignaréttur II Umgjörð og flokkun fasteigna. Í þessu þriðja bindi er áfram fjallað um fasteignir, þar sem frá var horfið í öðru bindi. Sjónum er einkum beint að auðlindum sem tengjast fasteignum; hvernig hagað er eignarrétti að þeim og reglum um nýtinguþeirra. Þá er fjallað um aðrar réttarreglur um fasteignir sem ekki var fjallað umí öðru bindi en þar skipar umfjöllun um veðréttindi í fasteignum veigamestan sess. Í bókarlok er síðan að finna kafla, sem marka lok umfjöllunar höfunda um fasteignir þar sem þess er m.a. freistað að setja umfjöllunina í samhengi við\u003cbr\u003eönnur bindi ritraðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð öllum sem með fasteignir sýsla og þurfa að þekkja lagaumhverfi þeirra. Þar er meðal annars um að ræða laganema, starfandi lögmenn, dómara,lögfræðinga almennt, fasteignasala og aðra sem vinna með fasteignir og þurfa að kunna skil á þeim réttarreglum sem um þær gilda, t.d. í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52006373851296,"sku":"","price":18900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_fff0d04e-f79e-4b84-a3c9-9cb29eea733f.jpg?v=1731938696"},{"product_id":"verdbrefamarkadsrettur","title":"Verðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga","description":"\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eVerðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eBókin er hugsuð sem kennslu- og fræðslurit á sviði verðbréfamarkaðs\u003c\/span\u003eréttar en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á löggjöf á þessu sviði innan Evrópska efnahagssvæðisins og hér á landi á síðastliðnum árum.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr markmið bókarinnar að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast ítarlega og vandaða umfjöllun um þær réttarheimildir sem gilda á þessu þýðingarmikla réttarsviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr bókin hugsuð fyrir nemendur á háskólastigi, fjárfesta, starfsmenn fyrirtækja á fjármálamarkaði, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt eða hafa áhuga á að kynna sér það.\u003cbr\u003eÍ bókinni er að finna ítarlega umfjöllun um hvernig löggjöf á þessu sviði hefur þróast hér á landi og innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vikið er að því hvernig eftirliti með regluverkinu er háttað og helstu grundvallarhugtökum sem gilda á þessu réttarsviði. Loks er þar að finna ítarlega umfjöllun um þær fjárfestaverndarreglur sem þar gilda, svo\u003cbr\u003esem almennu fjárfestaverndarregluna, reglur um flokkun viðskiptavina, mat á hæfi og tilhlýðileika, upplýsingagjöf til viðskiptavina, besta framkvæmd, hagsmunarárekstra, skilyrðum fyrir töku fjármálagerninga til viðskipta, lýsingar, almenn útboð og fleira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRitið skiptist í 5 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003cbr\u003e1. kafli Inngangur\u003cbr\u003e2. kafli Þróun löggjafar á sviði verðbréfamarkaðsréttar - áhrif Evrópuréttar\u003cbr\u003e3. kafli Eftirlit með verðbréfamarkaðinum\u003cbr\u003e4. kafli Markaðir með fjármálagerninga\u003cbr\u003e5. kafli Fjárfestavernd\u003cbr\u003eHöfundar: Aðalsteinn E. Jónasson og Andri Fannar Bergþórsson\u003cbr\u003eFjöldi blaðsíðna: 456 bls.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52167773749408,"sku":null,"price":14990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/C4287018-BDC0-4B43-9361-B0307CF55984.jpg?v=1736288594"},{"product_id":"endurheimt","title":"Endurheimt verðmæta við gjaldþrot 2. útg.","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEndurheimt verðmæta við gjaldþrot 2.útg.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOkkur er sönn ánægja að tilkynna að Codex hefur gefið út 2. útgáfu af ritinu Endurheimt verðmæta við gjaldþrot - skýringar við reglur XX. kafla laga nr. 21\/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir Viðar Má Matthíasson, rannsóknarprófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi hæstaréttardómara. Um er að ræða nýja og endurskrifaða útgáfu af bók með sama heiti sem út kom á árinu 2000 og er fyrir löngu uppseld. Riftunarreglur fengu í aðalatriðum núverandi skipan með lögum nr. 21\/1991. Frá gildistöku þeirra hafa gengið nokkur hundruð dómar um efni þeirra ekki sízt eftir að mælt var fyrir um að reglurnar skyldu gilda við slit fjármálafyrirtækja, sbr. 4. mgr. 103. gr. laga nr. 161\/2002 um fjármálafyrirtæki. Við ritun 1. útgáfu bókarinnar frá 1998 til 2000 höfðu gengið rúmlega 100 dómar um efnið, en við slit þeirra fjármálafyrirtækja sem leiddi af hinni alþjóðlegu efnahagskreppu sem skall á haustið 2008 og lagðist með fullum þunga á íslenzkt efnahagslíf fjölgaði dómum um riftun ráðstafana samkvæmt XX. kafla gþl. verulega. Auk dóma tengdum efnahagskreppunni hafa gengið fjölmargir aðrir dómar um riftun ráðstafana þrotamanns, sem um er fjallað í ritinu. Með þeim mikla fjölda dóma sem gengið hefur frá fyrri útgáfu hafa ákvæði riftunarreglna XX. kafla um gjaldþrotaskipti o.fl. þannig skýrzt mjög og liggja ýmis mikilvæg hugtök nú ljósar fyrir en áður, t.d. hvernig hugtökin greiðsla og skuld eru notuð í 134. gr. laganna. Enn frekar hafa dómaframkvæmd og síðari norræn fræðiskrif skýrt auðgunarhugtak 142. gr. gþl., einkum að því leyti sem það skilur sig frá skaðabótaábyrgð og ákvörðun á fjárhæð skaðabóta.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eRitið skiptist í 7 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003cbr\u003e1. kafli Inngangur\u003cbr\u003e2. kafli Ýmis hugtök og skýringar á þeim\u003cbr\u003e3. kafli Skiptastjóri\u003cbr\u003e4. kafli Skuldajöfnuður við gjaldþrotaskipti\u003cbr\u003e5. kafli Almenn atriði um riftun og gjaldþrotaskipti o.fl.\u003cbr\u003e6. kafli Einstakar riftunarreglur í XX. kafla gþl.\u003cbr\u003e7. kafli Endurgreiðslureglur XX. kafla gþl. réttaráhrif riftunar\u003cbr\u003eHöfundur: Viðar Már Matthíasson\u003cbr\u003eFjöldi blaðsíðna: 485 bls.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52167784530080,"sku":null,"price":15500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_ec802ea2-5b1a-4e94-83f1-8bc091600ee9.jpg?v=1736288621"},{"product_id":"hlutafelagarettur","title":"Hlutafélagaréttur","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Stefán Már Stefánsson. Fjallar um kjarna hlutafélagaréttarins – stofnun, skráningu, hluti og stjórnkerfi félaga – auk umfjöllunar um endurskoðun, ársreikninga, samruna og félagsslit. Útgáfuár: 2025.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52709715574944,"sku":null,"price":18990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/76C26476-B16D-48B7-B781-1092DA1A2848.jpg?v=1755436676"},{"product_id":"stjornsyslurettur-malsmedferd-2-utgafa","title":"Stjórnsýsluréttur Málsmeðferð 2. útgáfa","description":"\u003cp\u003eStjórnsýsluréttur Málsmeðferð 2. útgáfa\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: Páll Hreinsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgefandi: Codex\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52802863661216,"sku":null,"price":26490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/9789935508225.jpg?v=1783634162"},{"product_id":"endurskodun-stjornvaldsakvardana-1","title":"Endurskoðun Stjórnvaldsákvarðana","description":"\u003cp\u003eHluti af ritröð um íslenskan stjórnsýslurétt í ritstjórn Páls Hreinssonar og Trausta Fannars Valssonar. Fjallar um hvenær og hvernig stjórnvaldsákvörðun verður endurskoðuð, henni breytt eða hún felld niður – þ.m.t. ógildingu, endurupptöku, stjórnsýslukæru og eftirlit dómstóla og umboðsmanns Alþingis. Höfundar: Kjartan Bjarni Björgvinsson, Ólafur Jóhannes Einarsson og Páll Hreinsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53210653032608,"sku":null,"price":18990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_c47d9296-9b17-4451-aa8d-1461a6088033.jpg?v=1769525482"},{"product_id":"hvenaer-ma-skerda-eignarrett","title":"Hvenær má skerða eignarrétt?","description":"\u003cp\u003eÍ þessu riti er leitast við að svara þeirri spurningu hvernig takmarka megi eignarréttindi á lögmætan hátt samkvæmt íslenskum rétti. Höfundur leiðir lesandann í gegnum helstu hugtök eignaréttarins, skýrir frá stjórnskipulegri vernd eignarréttar samkvæmt stjórnarskrá, mannréttindasáttmála Evrópu og EES-rétti og sýnir hvernig þessar stoðir standa sameiginlega vörð um eignarrétt hér á landi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin setur fram nýja, einfaldari nálgun við mat á eignarskerðingum með því að byggja á fimm skilyrðum sem ráða því hvort takmörkun á eignarrétti telst heimil: lögmæti, markmiði í almannaþágu, meðalhófi, svigrúmi til mats og jafnræði. Með því verður auðveldara að framkvæma kerfisbundið mat á réttmæti eignarskerðinga og tryggja að jafnvægi ríki á milli réttinda einstaklinga og hagsmuna samfélagsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ ritinu eru dregin fram mörg hagnýt dæmi úr réttarframkvæmd, meðal annars um eignarskerðingar vegna efnahagsstjórnar, skattlagningar, kerfisbreytinga á atvinnuvegum, bótakerfum o.fl. og aðgerða tengdum fasteignum. Einnig er fjallað um þau réttarúrræði sem borgararnir hafa til að verja eignarrétt sinn, bæði fyrir innlendum dómstólum og á vettvangi Mannréttindadómstóls Evrópu og EFTA-dómstólsins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eÞótt ritið hafi  að geyma fræðilegt framlag til stjórnskipunarréttar og mannréttinda getur það einnig meðal annars gagnast eigendum, starfandi lögfræðingum og lögmönnum, starfsmönnum handhafa ríkisvaldsins sem fást við undirbúning löggjafar, lagasetningu, framkvæmd löggjafar og að dæma um eignarskerðingar. Þá á ritið erindi við almenning því eignarskerðingar koma oft við sögu í samfélags- og stjórnmálaumræðu.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eValgerður Sólnes er prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands. Hún lauk B.A. gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands 2007, meistaragráðu frá sama skóla 2009 og LL.M. gráðu frá Fordham-háskóla 2010. Doktorsritgerð hennar (Ph.D.) við Lagadeildir Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla 2018 var á sviði eignaréttar og mannréttinda. Helstu kennslugreinar hennar eru á sviði fjármunaréttar og hún hefur ritað fjölmargar greinar á ýmsum sviðum lögfræðinnar.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53210655719584,"sku":null,"price":14990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_a191eae3-dff3-4402-871f-4f1240caf86d.jpg?v=1769525469"},{"product_id":"botarettur-ii-vatryggingarettur-og-botarreglur-felagsmalarettar-2-utgafa-2026","title":"Bótaréttur II: Vátryggingaréttur og Bótarreglur Félagsmálaréttar 2. Útgáfa (2026)","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson, prófessor við lagadeild HÍ, og Viðar Már Matthíasson hæstaréttardómari. Annað bindið í fjögurra binda ritröð þeirra um íslenskan bótarétt, á eftir Bótarétti I um skaðabótarétt. Fjallar um almennan hluta vátryggingaréttar – þ.m.t. vátryggingasamninginn, upplýsingaskyldu og uppgjör bóta – og bótaúrræði félagsmálaréttar vegna líkamstjóna. Þessi 2. útgáfa er alls 764 síður.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53254368264352,"sku":null,"price":20490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_be48f5b0-8bba-4110-9445-f156ee99e1e4.jpg?v=1770907725"}],"url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/collections\/nyjustu-baekurnar.oembed","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}