{"title":"Home page","description":null,"products":[{"product_id":"eignarettur-3-nyting-audlinda-og-fleiri-rettarreglur-tengdar-fasteignum","title":"Eignaréttur III - nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignum","description":"\u003cp\u003eRitið Eignaréttur III – Nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignumer það þriðja í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I – Almennur hluti og árið 2023 Eignaréttur II Umgjörð og flokkun fasteigna. Í þessu þriðja bindi er áfram fjallað um fasteignir, þar sem frá var horfið í öðru bindi. Sjónum er einkum beint að auðlindum sem tengjast fasteignum; hvernig hagað er eignarrétti að þeim og reglum um nýtinguþeirra. Þá er fjallað um aðrar réttarreglur um fasteignir sem ekki var fjallað umí öðru bindi en þar skipar umfjöllun um veðréttindi í fasteignum veigamestan sess. Í bókarlok er síðan að finna kafla, sem marka lok umfjöllunar höfunda um fasteignir þar sem þess er m.a. freistað að setja umfjöllunina í samhengi við\u003cbr\u003eönnur bindi ritraðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð öllum sem með fasteignir sýsla og þurfa að þekkja lagaumhverfi þeirra. Þar er meðal annars um að ræða laganema, starfandi lögmenn, dómara,lögfræðinga almennt, fasteignasala og aðra sem vinna með fasteignir og þurfa að kunna skil á þeim réttarreglum sem um þær gilda, t.d. í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52006373851296,"sku":"","price":18900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_fff0d04e-f79e-4b84-a3c9-9cb29eea733f.jpg?v=1731938696"},{"product_id":"verdbrefamarkadsrettur","title":"Verðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga","description":"\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eVerðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eBókin er hugsuð sem kennslu- og fræðslurit á sviði verðbréfamarkaðs\u003c\/span\u003eréttar en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á löggjöf á þessu sviði innan Evrópska efnahagssvæðisins og hér á landi á síðastliðnum árum.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr markmið bókarinnar að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast ítarlega og vandaða umfjöllun um þær réttarheimildir sem gilda á þessu þýðingarmikla réttarsviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr bókin hugsuð fyrir nemendur á háskólastigi, fjárfesta, starfsmenn fyrirtækja á fjármálamarkaði, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt eða hafa áhuga á að kynna sér það.\u003cbr\u003eÍ bókinni er að finna ítarlega umfjöllun um hvernig löggjöf á þessu sviði hefur þróast hér á landi og innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vikið er að því hvernig eftirliti með regluverkinu er háttað og helstu grundvallarhugtökum sem gilda á þessu réttarsviði. Loks er þar að finna ítarlega umfjöllun um þær fjárfestaverndarreglur sem þar gilda, svo\u003cbr\u003esem almennu fjárfestaverndarregluna, reglur um flokkun viðskiptavina, mat á hæfi og tilhlýðileika, upplýsingagjöf til viðskiptavina, besta framkvæmd, hagsmunarárekstra, skilyrðum fyrir töku fjármálagerninga til viðskipta, lýsingar, almenn útboð og fleira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRitið skiptist í 5 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003cbr\u003e1. kafli Inngangur\u003cbr\u003e2. kafli Þróun löggjafar á sviði verðbréfamarkaðsréttar - áhrif Evrópuréttar\u003cbr\u003e3. kafli Eftirlit með verðbréfamarkaðinum\u003cbr\u003e4. kafli Markaðir með fjármálagerninga\u003cbr\u003e5. kafli Fjárfestavernd\u003cbr\u003eHöfundar: Aðalsteinn E. Jónasson og Andri Fannar Bergþórsson\u003cbr\u003eFjöldi blaðsíðna: 456 bls.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52167773749408,"sku":null,"price":14990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/C4287018-BDC0-4B43-9361-B0307CF55984.jpg?v=1736288594"}],"url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/collections\/frontpage.oembed","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}