{"title":"2. árs bækur HÍ 2025","description":"\u003cstyle\u003e\n.collection-hero__title { text-align: center; }\n.collection-hero__description { max-width: 100%; }\n.ulf-band { width: 100vw; position: relative; left: 50%; right: 50%; margin-left: -50vw; margin-right: -50vw; margin-top: -1.75rem; margin-bottom: 2rem; background: #1A1A1A; padding: 2.2rem 1.5rem; text-align: center; }\n.ulf-band p { color: #F5F5F0; opacity: 0.85; letter-spacing: 0.06em; text-transform: uppercase; font-size: 0.9em; margin: 0; }\n.ulf-desc { text-align: center; max-width: 640px; margin: 0 auto; font-size: 1.05em; line-height: 1.6; }\n\u003c\/style\u003e\n\n\u003cdiv class=\"ulf-band\"\u003e\u003cp\u003eSkyldubækur · 2. ár í lögfræði við HÍ\u003c\/p\u003e\u003c\/div\u003e\n\n\u003cp class=\"ulf-desc\"\u003eSkyldubækur fyrir 2. ár í lögfræði við HÍ — kröfuréttur, refsiréttur og fleira á einum stað.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"botarettur-i","title":"Bótaréttur I","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson og Viðar Már Matthíasson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBótaréttur I fjallar um skaðabótarétt, þ.e. þær reglur sem lúta að skaðabótum utan samninga. Þar er meðal annars fjallað um skilyrði skaðabótaábyrgðar, þ.á.m. reglurnar um grundvöll skaðabótaábyrgðar og þær reglur sem gilda um mörk og takmarkanir slíkrar ábyrgðar. Þá er fjallað um það tjón sem skaðabótum er ætlað að mæta, skaðabótakröfuna og fjárhæð skaðabóta.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35800701370528,"sku":"","price":17100.0,"currency_code":"ISK","in_stock":false}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/9789979825883-510x729.jpg?v=1598456205"},{"product_id":"eignarettur-i-almennur-hluti","title":"Eignaréttur I - almennur hluti","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Þorgeir Örlygsson, Karl Axelsson og Víðir Smári Petersen\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEignaréttur I, er hið fyrsta í fyrirhugaðri þriggja binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Þetta fyrsta bindi tekur til umfjöllunar reglur sem eru sameiginlegar flestum eignarréttindum og varða grundvallarþætti í íslenskri eignarréttarskipan. Í ritinu er fjallað um ýmsar raunhæfar réttarreglur sem oft reynir á fyrir dómstólum, eins og til dæmis andlag eignarréttar, eignaraðild, eignarform, forkaupsrétt og önnur óbein eignarréttindi, réttarreglur um sérstaka sameign, stofnunarhætti eignarréttinda og nábýlisrétt.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35800859574432,"sku":"","price":15190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/eignarettur1kapa-600x859.jpg?v=1598456389"},{"product_id":"ogildingarreglur-samningarettar","title":"Ógildingarreglur samningaréttar","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Ása Ólafsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eBók þessi fjallar um ógildingarreglur samningaréttar og er afrakstur kerfisbundinnar greiningar á lögum og lagaframkvæmd á þessu mikilvæga sviði lögfræðinnar. Ætlunin er að ná heildstætt utan um aðalatriði ógildingarreglnanna meðal annars með hliðsjón af úrlausnum Hæstaréttar Íslands þar sem deilt hefur verið um gildi samninga og annarra löggerninga. Umfjöllun bókarinnar er skipt í megindráttum í tvennt. Í fyrri hluta bókarinnar er fjallað almennt um ógildingarreglur samningaréttar. Tilgangur þeirrar umfjöllunar er að varpa ljósi á ógildingarástæður samningaréttar í heild sinni og gera efni bókarinnar aðgengilegra. Í seinni hlutanum eru einstakar ógildingarástæður samningalaganna teknar til nánari umfjöllunar.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35892083851424,"sku":"","price":15000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/0935652b-5ab4-4ce6-b0d1-1e5ec24f8393.jpg?v=1598463114"},{"product_id":"malsmedferd-stjonvalda","title":"Málsmeðferð stjórnvalda","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003e\u003cem\u003e \u003c\/em\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur: Páll Hreinsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"m_2745322904312624753m_5081070298567285132Megin-2\"\u003eBók þessi er hluti af ritröð á sviði lögfræði sem fjallar á heildstæðan hátt um almennar réttarreglur íslensks stjórnsýsluréttar. Bera ritin í ritröðinni eftirfarandi heiti: \u003cspan class=\"il\"\u003eStjórnsýslukerfið\u003c\/span\u003e, Málsmeðferð stjórnvalda, Upplýsingaréttur, Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttar, Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana, Opinber starfsmannaréttur og Stjórnsýsla á sveitarstjórnarstigi. Ritröðin er í heild unnin undir ritstjórn dr. juris Páls Hreinssonar forseta EFTA-dómstólsins og Trausta Fannars Valssonar dósents við Lagadeild Háskóla Íslands. Höfunda er síðan getið í hverju bindi fyrir sig.\u003ci\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"m_2745322904312624753m_5081070298567285132Megin-2\"\u003eHöfundur bókarinnar er Páll Hreinsson forseti EFTA-dómstólsins. Í bókinni fjallar Páll á skýran hátt um þær réttarreglur sem gilda um það hvernig stofnað er til stjórnsýslumála, hvernig þau eru rannsökuð og hvernig ákvörðun er tekin í þeim. Vikið er að mörgum mikilvægum reglum, s.s. um sérstakt hæfi starfsmanna stjórnvalda, leiðbeiningarskyldu stjórnvalda, rannsóknarreglu, andmælareglu, reglum um aðgang aðila máls að gögnum málsins og reglum um rökstuðning stjórnvaldsákvarðana o.fl. Þá er í bókinni vikið að þýðingu persónuupplýsingalaga við meðferð stjórnsýslumála. Sjónarhornið er samskipti borgaranna, þ.e. aðila málsins, og þess stjórnvalds sem fer með málið og tekur ákvörðun. Samhliða kemur út ritið\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003e\u003ci\u003eStjórnsýslukerfið\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eeftir Trausta Fannar Valsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35892121469088,"sku":"","price":15490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/MALSMEDFERD_STJORNVALDA_MARKS_3-copy-600x899.jpg?v=1598463395"},{"product_id":"stjornsyslukerfid","title":"Stjórnsýslukerfið","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Trausti Fannar Valsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"m_2745322904312624753m_5081070298567285132Megin-2\"\u003eBók þessi er hluti af ritröð á sviði lögfræði sem fjallar á heildstæðan hátt um almennar réttarreglur íslensks stjórnsýsluréttar. Bera ritin í ritröðinni eftirfarandi heiti: \u003cb\u003e\u003cspan class=\"il\"\u003eStjórnsýslukerfið\u003c\/span\u003e, Málsmeðferð stjórnvalda, Upplýsingaréttur, Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttar, Endurskoðun stjórnvaldsákvarðana, Opinber starfsmannaréttur\u003c\/b\u003e og \u003cb\u003eStjórnsýsla á sveitarstjórnarstigi\u003c\/b\u003e. Ritröðin er í heild unnin undir ritstjórn dr. juris Páls Hreinssonar forseta EFTA-dómstólsins og Trausta Fannars Valssonar dósents við Lagadeild Háskóla Íslands. Höfunda er síðan getið í hverju bindi fyrir sig.\u003ci\u003e\u003cu\u003e\u003c\/u\u003e\u003c\/i\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"m_2745322904312624753m_5081070298567285132Megin-2\"\u003eHöfundur bókarinnar er Trausti Fannar Valsson dósent. Meðal mikilvægra umfjöllunarefna í bókinni er aðgengileg lögfræðileg lýsing á stjórnsýslukerfinu, þ.e. á því hverjir fara með stjórnsýsluna, hvernig einstakar skipulagsheildir, stigveldi og yfirstjórn er almennt upp byggð innan kerfisins og hvernig má framselja vald frá einu stjórnvaldi til annars. Í bókinni er einnig lýst á heildstæðan hátt þeim verkefnum sem stjórnvöld sinna og þeim stjórntækjum sem þau hafa til að framkvæma þau. Má líta á hana sem inngang að almennum stjórnsýslurétti. Samhliða kemur út ritið \u003ci\u003eMálsmeðferð stjórnvalda\u003c\/i\u003e\u003cspan\u003e \u003c\/span\u003eeftir dr. juris Pál Hreinsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35895336140960,"sku":"","price":10990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/stjornsyslukerfid-600x899.jpg?v=1598485863"},{"product_id":"eignarnam","title":"Eignarnám","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Karl Axelsson og Ásgerður Ragnarsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp class=\"p2\"\u003eBókin Eignarnám er heildstætt fræðirit sem byggist á rannsóknum höfunda á öllum þáttum framkvæmdar eignarnáms síðustu áratugi. Áhersla er lögð á sjálfa eignarnámsákvörðunina og ákvörðun eignarnámsbóta, sem hafa hvað mesta þýðingu í framkvæmd, en jafnframt fjallað um ferlið í heild allt frá undirbúningi þeirrar framkvæmdar sem eignarnám kann síðar að helgast af og til þess tíma sem umráðataka fer fram. Enn fremur eru tekin til umfjöllunar ýmis önnur atriði sem tengjast eignarnámsferlinu, svo sem varanleiki eignarnáms, og hugmyndir höfunda um mögulegar úrbætur á löggjöf sem tengist eignarnámi.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð starfandi lögfræðingum og öllum þeim sem koma að eignarnámi með einum eða öðrum hætti, hvort sem er í stjórnsýslu, á vettvangi opinberra stofnana eða sveitarfélaga. Þá gagnast ritið lögmönnum og starfsmönnum einkafyrirtækja. Að sama skapi er það ætlað laganemum og því jafnframt hugsað sem kennslubók við lagadeildir háskólanna.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41544448442528,"sku":"","price":14190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/eignarnam.jpg?v=1641224290"},{"product_id":"almennar-efnisreglur-stjornsyslurettarins","title":"Almennar efnisreglur stjórnsýsluréttarins","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Páll Hreinsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\u003cspan\u003eÍ bókinni er \u003c\/span\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003efjallað um mörg af flóknustu viðfangsefnum stjórnsýsluréttarins sem eru lögfræðileg álitaefni tengd annars vegar spurningum um það hvort stjórnvald hafi næga lagaheimild til að taka tiltekna ákvörðun og hins vegar spurningum um hvernig eigi að standa að fyllingu og túlkun matskenndra lagaheimilda þar sem stjórnvöldum hefur verið fengið stjórnsýslulegt mat. Þegar þessum spurningum er svarað þarf m.a. að\u003cbr\u003efást við lögmætisregluna, réttmætisregluna, jafnræðisreglur, regluna um skyldubundið mat, meginregluna um réttmætar væntingar aðila máls, skýrleikaregluna og meðalhófsregluna.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42906076053664,"sku":"","price":16499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/stjornsysluretturIII_713x_296e9edb-f14b-43be-afad-6544a192a5b3.webp?v=1704455891"},{"product_id":"eignarettur-ii-umgjord-og-flokkun-fasteigna","title":"Eignaréttur II - Umgjörð og flokkun fasteigna","description":"\u003cp\u003eRit þetta, Eignaréttur 2 – Umgjörð og flokkun fasteigna, er annað bindið í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I Almennur hluti. Í þessu öðru bindi verður eins og nafnið bendir til fjallað um ýmis atriði sem tengjast umgjörð fasteigna og flokkun þeirra. Umfjöllun um fasteignir eru eitt megin viðfangsefni eignaréttarins. Fasteignir eru að jafnaði verðmætustu eignir einstaklinga í okkar samfélagi og hafa afar mikilvæga efnahagslega þýðingu fyrir þjóðfélagið allt en heildarfasteignamat á landinu fyrir árið 2023 nemur 12.627 milljörðum króna. Þá eru fasteignir þýðingarmikið andlag viðskipta og einstaklingar og fyrirtæki geta tekið lán sem eru tryggð með veði í fasteignum og þannig stundað skuldsett viðskipti í stað þess að staðgreiða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞá má ekki gleymast að fasteignir, sem samveru- og griðastaður fjölskyldunnar, hafa mikilvæga félagslega þýðingu enda njóta heimili manna friðhelgi á grundvelli 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í þessu riti er meðal annars að finna umfjöllun um hugtakið fasteign; fylgifé fasteignar; hvernig staðið er að stofnun, skráningu, mati og skiptingu fasteigna; merki fasteigna; þinglýsingu fasteignaréttinda; flokkunina í eignarlönd og þjóðlendur; jarðir; afnotasamninga um fasteignir og fjöleignarhús.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð laganemum, lögfræðingum almennt, þar með talið starfandi lögmönnum og dómurum, sem og öðrum þeim sem fjalla um fasteignir og þær réttarreglur sem um þær gilda, til dæmis í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42906078249120,"sku":"","price":16499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/Eignarettur_1.jpg?v=1723839145"},{"product_id":"eignarettur-3-nyting-audlinda-og-fleiri-rettarreglur-tengdar-fasteignum","title":"Eignaréttur III - nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignum","description":"\u003cp\u003eRitið Eignaréttur III – Nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignumer það þriðja í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I – Almennur hluti og árið 2023 Eignaréttur II Umgjörð og flokkun fasteigna. Í þessu þriðja bindi er áfram fjallað um fasteignir, þar sem frá var horfið í öðru bindi. Sjónum er einkum beint að auðlindum sem tengjast fasteignum; hvernig hagað er eignarrétti að þeim og reglum um nýtinguþeirra. Þá er fjallað um aðrar réttarreglur um fasteignir sem ekki var fjallað umí öðru bindi en þar skipar umfjöllun um veðréttindi í fasteignum veigamestan sess. Í bókarlok er síðan að finna kafla, sem marka lok umfjöllunar höfunda um fasteignir þar sem þess er m.a. freistað að setja umfjöllunina í samhengi við\u003cbr\u003eönnur bindi ritraðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð öllum sem með fasteignir sýsla og þurfa að þekkja lagaumhverfi þeirra. Þar er meðal annars um að ræða laganema, starfandi lögmenn, dómara,lögfræðinga almennt, fasteignasala og aðra sem vinna með fasteignir og þurfa að kunna skil á þeim réttarreglum sem um þær gilda, t.d. í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52006373851296,"sku":"","price":18900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_fff0d04e-f79e-4b84-a3c9-9cb29eea733f.jpg?v=1731938696"},{"product_id":"endurskodun-stjornvaldsakvardana-1","title":"Endurskoðun Stjórnvaldsákvarðana","description":"\u003cp\u003eHluti af ritröð um íslenskan stjórnsýslurétt í ritstjórn Páls Hreinssonar og Trausta Fannars Valssonar. Fjallar um hvenær og hvernig stjórnvaldsákvörðun verður endurskoðuð, henni breytt eða hún felld niður – þ.m.t. ógildingu, endurupptöku, stjórnsýslukæru og eftirlit dómstóla og umboðsmanns Alþingis. Höfundar: Kjartan Bjarni Björgvinsson, Ólafur Jóhannes Einarsson og Páll Hreinsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":53210653032608,"sku":null,"price":18990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_c47d9296-9b17-4451-aa8d-1461a6088033.jpg?v=1769525482"}],"url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/en\/collections\/2-ars-pakkinn.oembed","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}