{"title":"Meistara","description":"\u003cp\u003eKennslurit og fræðirit fyrir meistaranema í lögfræði við Háskóla Íslands.\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"eignarettur-i-almennur-hluti","title":"Eignaréttur I - almennur hluti","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Þorgeir Örlygsson, Karl Axelsson og Víðir Smári Petersen\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eEignaréttur I, er hið fyrsta í fyrirhugaðri þriggja binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Þetta fyrsta bindi tekur til umfjöllunar reglur sem eru sameiginlegar flestum eignarréttindum og varða grundvallarþætti í íslenskri eignarréttarskipan. Í ritinu er fjallað um ýmsar raunhæfar réttarreglur sem oft reynir á fyrir dómstólum, eins og til dæmis andlag eignarréttar, eignaraðild, eignarform, forkaupsrétt og önnur óbein eignarréttindi, réttarreglur um sérstaka sameign, stofnunarhætti eignarréttinda og nábýlisrétt.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35800859574432,"sku":"","price":15190.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/eignarettur1kapa-600x859.jpg?v=1598456389"},{"product_id":"adfaragerdir","title":"Aðfarargerðir","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Markús Sigurbjörnsson. Fjallar um aðfarargerðir samkvæmt íslenskum rétti – réttarúrræði til fullnustu krafna, s.s. fjárnám og innsetningu, framkvæmd þeirra hjá sýslumanni og málsmeðferð fyrir dómstólum.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35895262609568,"sku":"","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/55D5C77C-3198-4535-B851-BF786EF7723A.jpg?v=1725988975"},{"product_id":"samstaedur-hlutafelaga","title":"Samstæður hlutafélaga","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Stefán Már Stefánsson\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMegintilgangur þessarar bókar er að gefa samfellda lýsingu á þeim reglum sem gilda um samstæður hlutafélaga og einkahlutafélaga.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHöfundur er prófesser emeritus við lagadeild Háskóla Íslands.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35895495426208,"sku":"","price":5550.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/7ca55d85-82e2-439a-9260-02bdadd7052d.jpg?v=1598487527"},{"product_id":"vidurlog-og-vidurlagapolitik-fjolrit","title":"Viðurlög og viðurlagapólitík - fjölrit","description":"\u003cp\u003e\u003cspan\u003eFjallað verður almennt um viðurlagakerfið, þróun þess og helstu einkenni, svo og um viðurlagapólitík, markmið hennar, forsendur og úrræði. Rætt verður ítarlega um fangelsismál, svo sem upphaf og þróun refsivistarstofnana, núverandi stofnanir, stjórn og skipulag fangelsismála, fangavist og réttarstöðu fanga með hliðsjón af mannréttindasáttmála Evrópu, evrópsku fangelsisreglurnar, öryggi í fangelsum og agaviðurlög, reynslulausn og náðun. Rætt verður um refsigæslu utan stofnana, svo sem samfélagsþjónustu, sáttamiðlun og rafrænt eftirlit og barnaverndarúrræðum verða gerð nokkur skil. Fjallað verður um refsipólitísk sjónarmið við ákvörðun refsinga, þyngd refsinga og samanburð á refsingum fyrir einstaka brotaflokka. Loks verður fjallað um fésektir og sektafullnustu og um eignaupptöku.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35982673215648,"sku":"","price":4490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender.heic?v=1723211874"},{"product_id":"fjolmidlarettur","title":"Fjölmiðlaréttur","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson og Halldóra Þorsteinsdóttir\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eFjölmiðlaréttur er sú undirgrein lögfræðinnar sem fæst við þær réttarreglur er snerta stöðu og starfsemi fjölmiðla. Í ritinu er með heildstæðum hætti gerð grein fyrir helstu reglum greinarinnar, en hinar íslensku reglur á þessu sviði hafa mikil tengsl við alþjóðlega samninga um mannréttindi og hafa sætt verulegum breytingum á undanförnum árum. \u003cbr\u003eÍ bókinni er ítarlega fjallað um mannréttindaákvæði, tjáningarfrelsi og friðhelgi einkalífs og ákvæði laga um fjölmiðla, þ. á m. um réttindi og skyldur fjölmiðla. Eins er fjallað um meiðyrðalöggjöfina og þær reglur sem gilda um ábyrgð á fjölmiðlaefni, sem og gildandi reglur um auglýsingar og önnur viðskiptaboð. \u003cbr\u003eBókin er rúmlega 460 bls. að lengd, prentuð á hágæða bókapappír og gefin út í harðspjaldi. \u003cbr\u003eBókin gagnast laganemum og starfandi lögfræðingum, ásamt fjölmiðlafólki og öllum öðrum sem vilja glöggva sig á réttarreglum um fjölmiðla og starfsemi þeirra.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":35997901553824,"sku":"","price":10900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/6e14f5f4-1dfc-4b71-8ba5-ee5f76f0579e.jpg?v=1598963427"},{"product_id":"gjaldthrotaskipti-ofl-handbok","title":"Gjaldþrotaskipti ofl. - handbók","description":"Höfundur: Ása Ólafsdóttir","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":36245542928544,"sku":"","price":5999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/thumbnail_Gjaldtrotaskipti.jpg?v=1629108935"},{"product_id":"thaettir-um-audgunarbrot-serstakur-hluti","title":"Þættir um auðgunarbrot - sérstakur hluti","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Jónatan Þórmundsson. Fjallar um einstök auðgunarbrot að íslenskum rétti, s.s. þjófnað, fjársvik og fjárdrátt, sem framhald af almenna hlutanum um auðgunarbrot.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":36301400211616,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/Logo_400x400_1024x1024_2x_6ff4e3f9-5308-436e-be04-05839955635d.png?v=1600345188"},{"product_id":"handbok-naudungasala","title":"Handbók - Nauðungasala","description":"","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":37581964050592,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/thumbnail_Naudungarsala.jpg?v=1629108990"},{"product_id":"handbok-um-adfor-kyrrsetningu-og-logbann","title":"Handbók - um aðför, kyrrsetningu og lögbann","description":"","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":37581974962336,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/thumbnail_Adfor.jpg?v=1629109055"},{"product_id":"handbok-skipti-a-danarbuum-ofl","title":"Handbók - skipti á dánarbúum ofl.","description":"","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":37581987414176,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/C536412B-5AFC-4EB1-82AC-DBD089D60A7A.jpg?v=1724457404"},{"product_id":"botarettur-iii","title":"Bótaréttur III","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson og Viðar Már Matthíasson\u003c\/p\u003e\n\u003cp align=\"justify\"\u003eRitið fjallar um helstu sérsvið skaðabótaréttar, þ.e. þau svið skaðabótaréttar þar sem sakarreglunni er ýmist beitt með öðrum hætti en almennt er, oftast þannig að skaðabótaábyrgð er hert, eða lagareglur mæla fyrir um sérstaka skipan bótareglna og eftir atvikum vátryggingarskyldu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp align=\"justify\"\u003eÍ Bótarétti I var fjallað um almennar reglur skaðabótaréttar. Í Bótarétti III er byggt ofan á þekkingu úr Bótarétti I og gerð grein fyrir helstu atriðum sérsviða skaðabótaréttar. Flest hafa sérsviðin mikla hagnýta þýðingu og á þau reynir að talsverðu marki í framkvæmd.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRitið skiptist 15 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003e 1. kafli – Inngangur.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 2. kafli – Ábyrgð vegna ökutækja.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 3. kafli – Sjúklingatrygging.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 4. kafli – Skaðsemisábyrgð.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 5. kafli – Skaðabótaábyrgð barna og foreldra.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 6. kafli – Skaðabótaábyrgð á tjóni af völdum dýra.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 7. kafli – Skaðabótaábyrgð fasteignareiganda.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 8. kafli – Sérfræðiábyrgð.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e 9. kafli – Skaðabótaábyrgð vegna umhverfistjóna.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e10. kafli – Skaðabótaábyrgð hins opinbera.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e11. kafli – Bætur vegna sakamála.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e12. kafli – Sanngirnisbætur.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e13. kafli – Greiðsla ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e14. kafli – Bætur vegna ærumeiðinga.\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003e15. kafli – Bætur vegna brota á reglum útboðsréttar.\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":37653444722848,"sku":"","price":15100.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/Screenshot2021-01-06at15.23.57.png?v=1609946717"},{"product_id":"althjodlegur-skattarettur","title":"Alþjóðlegur skattaréttur","description":"\u003cp\u003eAlþjóðlegur skattaréttur eftir Stefán Má Stefánsson, Ragnheiði Snorradóttur og Kristinn Má Reynisson.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eAlþjóðlegur skattaréttur fjallar um skattlagningu þegar viðskipti og réttarstaða skattaðila tengjast fleiri en einu ríki og leysa þarf úr því hvert ríkjanna eigi skattlagningarrétt.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ ritinu er að finna heildstæða umfjöllun um alþjóðlegan skattarétt, með áherslu á tvísköttun, tvísköttunarsamninga, evrópskar skattareglur og reglur um gagnkvæm upplýsingaskipti milli ríkja í skattamálum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ ritinu er gerð grein fyrir helstu reglum sem þetta varða auk viðeigandi framkvæmdar dómstóla og skattyfirvalda bæði hér á landi og víðar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEfni ritsins er í aðalatriðum byggt á ritinu Tvísköttunarsamningar og evrópskar skattareglur sem kom út árið 2011 í ritröð Lagastofnunar Háskóla Íslands.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÚtgáfuár 2020.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":37665444135072,"sku":"","price":6490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/f92eb15e-ae4a-4b1e-9cdc-b4bcb0e24e76.png?v=1609933832"},{"product_id":"personuverndarrettur-1","title":"Persónuverndarréttur","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Björg Thorarensen\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBók þessi fjallar um þær réttareglur sem gilda á sviði persónuverndarréttar, fræðilegar undirstöður þeirra, uppruna, markmið, helstu efnisreglur svo og framkvæmd að íslenskum rétti. Þá eru rannsökuð sérstaklega tengsl persónuverndar við friðhelgi einkalífs og tjáningarfrelsi. Gerð er grein fyrir meginheimild réttarsviðsins persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins frá 2016, sem var tekin upp í EES- samninginn og innleidd með lögum nr. 90\/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Markmið ritsins er að veita heildstæða mynd af því hvernig meginreglur og ákvæði reglugerðinnar og laganna birtast í íslenskri réttarframkvæmd í ljósi þróunar í Evrópurétti. Gerð er grein fyrir helstu hugtökum, heimildum til vinnslu persónuupplýsinga, réttindum skráðra einstaklinga, skyldum ábyrgðar- og vinnsluaðila, öryggi persónuupplýsinga, flutningi persónuupplýsinga til þriðju landa svo og eftirliti með lagaframkvæmd. Þá er lýst túlkun og beitingu réttarreglna um einkalífs- og persónuvernd í framkvæmd íslenskra dómstóla, Mannréttindadómstóls Evrópu, Evrópudómstólsins og úrlausnum Persónuverndar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er einkum ætluð þeim sem stunda rannsóknir eða nám á háskólastigi á sviði persónuverndarréttar en einnig þeim sem starfa á vettvangi stjórnsýslu og dómstóla svo öllum öðrum sem vinna með persónuupplýsingar í daglegum störfum.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40480351879328,"sku":"","price":14999.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/personuverndarrettur_cover-330x462.png?v=1627135325"},{"product_id":"fasteignir-og-fasteignakaup","title":"Fasteignir og fasteignakaup","description":"Höfundur: Viðar Már Matthíasson","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":40718222393504,"sku":"","price":12900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/9789979825456.jpg?v=1629798832"},{"product_id":"thaettir-um-audgunarbrot-almennur-hluti","title":"Þættir um auðgunarbrot - Almennur hluti","description":"","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41745897095328,"sku":"","price":3990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}]},{"product_id":"althjodlegur-einkamalarettur","title":"Alþjóðlegur einkamálaréttur","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Eiríkur Elís Þorláksson. Fjallar um lagaskil og alþjóðlega lögsögu í einkamálum með erlendum tengslum – hvaða réttarreglur og dómstóll eiga við þegar mál snerta fleiri en eitt réttarkerfi.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41866144776352,"sku":"","price":12990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/ora2019-6.jpg?v=1721763599"},{"product_id":"fjolrit-fyrir-vinnurett","title":"Fjölrit fyrir Vinnurétt","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Ásmundur Helgason og Berglind Bára Sigurjónsdóttir. Kennslufjölrit í vinnurétti – réttarreglum á vinnumarkaði, kjarasamningum og réttindum og skyldum launafólks og atvinnurekenda.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":41866251960480,"sku":"","price":6990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/1DF94D53-AA79-4665-A8FA-0FD6FFF99762.jpg?v=1721741741"},{"product_id":"verktafir-abyrgd-a-theim-og-afleidingar","title":"Verktafir, ábyrgð á þeim og afleiðingar","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Víðir Smári Petersen\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ ritinu er m.a. fjallað um hver séu skilyrði þess að verktaki eigi rétt á framlengingu skilafrests og hvernig hann eigi að bera sig að til þess að ná slíkum kröfum fram. Þá er fjallað um tafabótakröfur verkkaupa, til dæmis tímabil tafabóta, hvernig beri að ákvarða fjárhæð þeirra og hvenær getur komið til þess að tafabætur verði lækkaðar. Einnig er fjallað um gagnkvæmar tillits- og tilkynningarskyldur aðila og úrlausn ágreiningsmála á verktíma. Loks er fjallað um það að hvaða leyti höfundur telur tilefni til þess að endurskoða ákvæði staðalsins ÍST 30:2012. \u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42497665007776,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/Screenshot2022-08-30at12.15.24.png?v=1661861739"},{"product_id":"eignarettur-ii-umgjord-og-flokkun-fasteigna","title":"Eignaréttur II - Umgjörð og flokkun fasteigna","description":"\u003cp\u003eRit þetta, Eignaréttur 2 – Umgjörð og flokkun fasteigna, er annað bindið í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I Almennur hluti. Í þessu öðru bindi verður eins og nafnið bendir til fjallað um ýmis atriði sem tengjast umgjörð fasteigna og flokkun þeirra. Umfjöllun um fasteignir eru eitt megin viðfangsefni eignaréttarins. Fasteignir eru að jafnaði verðmætustu eignir einstaklinga í okkar samfélagi og hafa afar mikilvæga efnahagslega þýðingu fyrir þjóðfélagið allt en heildarfasteignamat á landinu fyrir árið 2023 nemur 12.627 milljörðum króna. Þá eru fasteignir þýðingarmikið andlag viðskipta og einstaklingar og fyrirtæki geta tekið lán sem eru tryggð með veði í fasteignum og þannig stundað skuldsett viðskipti í stað þess að staðgreiða.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞá má ekki gleymast að fasteignir, sem samveru- og griðastaður fjölskyldunnar, hafa mikilvæga félagslega þýðingu enda njóta heimili manna friðhelgi á grundvelli 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í þessu riti er meðal annars að finna umfjöllun um hugtakið fasteign; fylgifé fasteignar; hvernig staðið er að stofnun, skráningu, mati og skiptingu fasteigna; merki fasteigna; þinglýsingu fasteignaréttinda; flokkunina í eignarlönd og þjóðlendur; jarðir; afnotasamninga um fasteignir og fjöleignarhús.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð laganemum, lögfræðingum almennt, þar með talið starfandi lögmönnum og dómurum, sem og öðrum þeim sem fjalla um fasteignir og þær réttarreglur sem um þær gilda, til dæmis í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga.\u003c\/p\u003e\n\u003c!----\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":42906078249120,"sku":"","price":16499.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/Eignarettur_1.jpg?v=1723839145"},{"product_id":"bradabirgdagerdir","title":"Bráðabirgðagerðir","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Eiríkur Elís Þorláksson. Útgáfuár: 2023. Fjallar um bráðabirgðaúrræði í réttarfari, s.s. kyrrsetningu og lögbann til bráðabirgða, áður en efnisdómur liggur fyrir.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43466075439264,"sku":"","price":8349.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/Unknown.jpg?v=1721763768"},{"product_id":"evropskur-felagarettur","title":"Evrópskur félagaréttur","description":"\u003cp\u003eHöfundur: Stefán Már Stefánsson. Fjallar um þjóðerni félaga og samræmingu félagaréttar innan Evrópusambandsins gegnum reglugerðir og tilskipanir, auk fjórfrelsisreglna um stofnsetningarrétt og þjónusturétt sem gera evrópskum félögum kleift að starfa yfir landamæri.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":43524678451360,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/products\/Screenshot2023-03-15at13.56.10.png?v=1678888695"},{"product_id":"botarettur-iv-sersvid-vatryggingarettar","title":"Bótaréttur IV: Sérsvið vátryggingaréttar","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson og Viðar Már Matthíasson. Útgáfuár: 2023. Fjórða og síðasta bindið í ritröð höfunda um bótarétt. Fjallar um sérsvið vátryggingaréttar, framhald af almennum hluta í Bótarétti II.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":44676500422816,"sku":"","price":17100.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/9789935508133.jpg?v=1685015282"},{"product_id":"opinbert-markadseftirlit","title":"Opinbert markaðseftirlit","description":"\u003cp\u003eHöfundar: Eiríkur Jónsson, Friðrik Ársælsson og Kristín Benediktsdóttir. Fjallar um lagaramma opinbers eftirlits með fjármálamörkuðum á Íslandi, hlutverk eftirlitsstofnana og valdheimildir þeirra.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46511930310816,"sku":"","price":11100.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/opinbertmarkadseftirlit.jpg?v=1692626929"},{"product_id":"untitled-sep12_09-20","title":"Höfundaréttur - fjölrit","description":"\u003cp\u003eAðeins seld nemendum í Höfundarétti. Fjölrit eftir Pál Sigurðsson.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":46934715465888,"sku":"","price":5990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/9F75C902-28B7-472A-979F-04F604DF8943.heic?v=1694510970"},{"product_id":"skattarettur","title":"Skattaréttur","description":"\u003cp\u003eSkattaréttur: Meginreglur og málsmeðferð eftir Sindra M. Stephensen. \u003c\/p\u003e\n\u003cmeta charset=\"UTF-8\"\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan\u003eRitið fjallar um helstu reglur íslensks skattaréttar. Markmið ritsins er að afmarka auðkenni skatta, greina á hvaða réttarheimildum skattlagning er byggð og skoða hinar ýmsu tegundir skatta og skattastefnur. Jafnframt er leitast við að greina helstu hugtök sem koma til skoðunar við álagningu skatta. Að auki er fjallað um skattstjórnvöld og helstu málsmeðferðarreglur er um þau gilda. Um er að ræða grunnrit í íslenskum skattarétti þar sem hinar breiðu línur réttarsviðsins eru afmarkaðar. Áhersla er einkum lögð á umfjöllun um form- og efnisreglur laga nr. 90\/2003 um tekjuskatt. Ritið fjallar um landsrétt en jafnframt er horft til reglna sem rætur eiga að rekja til skuldbindinga Íslands að þjóðarétti, svo sem á grundvelli tvísköttunarsamninga, EES-samningsins og mannréttindasáttmála Evrópu. Ritið er rúmlega 400 bls. \u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47008892780704,"sku":"","price":15500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender.jpg?v=1695650689"},{"product_id":"vidbotakrofur-verktaka-i-verksamningum","title":"Viðbótakröfur verktaka í verksamningum","description":"\u003cp\u003eFyrsta ritið í ritröðinni, er ritgerð eftir Jóhannes Karl Sveinsson hrl. á sviði verktakaréttar, nánar til tekið um viðbótarkröfur verktaka í verksamningum.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÍ ritgerðinni er að finna yfirlit um íslenska réttarframkvæmd á þessu sviði þar sem reynt er að skýra og greina þau atvik sem geta veitt verktaka heimild til viðbótarkrafna.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eHagnýtt gildi ritgerðarinnar er því ótvírætt fyrir lögmenn, lögfræðinga, verkfræðinga og aðra tæknimenn sem starfa á þessu sviði, enda oftar en ekki sem ágreiningur rís um þessi atriði í verktakasamningum.\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":51567689629856,"sku":"","price":5490.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/IMG-4752.heic?v=1725912877"},{"product_id":"eignarettur-3-nyting-audlinda-og-fleiri-rettarreglur-tengdar-fasteignum","title":"Eignaréttur III - nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignum","description":"\u003cp\u003eRitið Eignaréttur III – Nýting auðlinda og fleiri réttarreglur tengdar fasteignumer það þriðja í fjögurra binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Árið 2020 kom út fyrsta bindið, Eignaréttur I – Almennur hluti og árið 2023 Eignaréttur II Umgjörð og flokkun fasteigna. Í þessu þriðja bindi er áfram fjallað um fasteignir, þar sem frá var horfið í öðru bindi. Sjónum er einkum beint að auðlindum sem tengjast fasteignum; hvernig hagað er eignarrétti að þeim og reglum um nýtinguþeirra. Þá er fjallað um aðrar réttarreglur um fasteignir sem ekki var fjallað umí öðru bindi en þar skipar umfjöllun um veðréttindi í fasteignum veigamestan sess. Í bókarlok er síðan að finna kafla, sem marka lok umfjöllunar höfunda um fasteignir þar sem þess er m.a. freistað að setja umfjöllunina í samhengi við\u003cbr\u003eönnur bindi ritraðarinnar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBókin er ætluð öllum sem með fasteignir sýsla og þurfa að þekkja lagaumhverfi þeirra. Þar er meðal annars um að ræða laganema, starfandi lögmenn, dómara,lögfræðinga almennt, fasteignasala og aðra sem vinna með fasteignir og þurfa að kunna skil á þeim réttarreglum sem um þær gilda, t.d. í stjórnsýslu opinberra stofnana og sveitarfélaga\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52006373851296,"sku":"","price":18900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_fff0d04e-f79e-4b84-a3c9-9cb29eea733f.jpg?v=1731938696"},{"product_id":"verdbrefamarkadsrettur","title":"Verðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga","description":"\u003cp\u003e\u003cspan style=\"text-decoration: underline;\"\u003e\u003cstrong\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eVerðbréfamarkaðsréttur 1 - markaðir og viðskipti með fjármálagerninga\u003c\/span\u003e\u003c\/strong\u003e\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cspan style=\"font-size: 0.875rem;\"\u003eBókin er hugsuð sem kennslu- og fræðslurit á sviði verðbréfamarkaðs\u003c\/span\u003eréttar en umfangsmiklar breytingar hafa orðið á löggjöf á þessu sviði innan Evrópska efnahagssvæðisins og hér á landi á síðastliðnum árum.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr markmið bókarinnar að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast ítarlega og vandaða umfjöllun um þær réttarheimildir sem gilda á þessu þýðingarmikla réttarsviði.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEr bókin hugsuð fyrir nemendur á háskólastigi, fjárfesta, starfsmenn fyrirtækja á fjármálamarkaði, eftirlitsaðila, lögmenn, dómara, endurskoðendur, fjölmiðla og aðra sem vinna með regluverkið á einn eða annan hátt eða hafa áhuga á að kynna sér það.\u003cbr\u003eÍ bókinni er að finna ítarlega umfjöllun um hvernig löggjöf á þessu sviði hefur þróast hér á landi og innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vikið er að því hvernig eftirliti með regluverkinu er háttað og helstu grundvallarhugtökum sem gilda á þessu réttarsviði. Loks er þar að finna ítarlega umfjöllun um þær fjárfestaverndarreglur sem þar gilda, svo\u003cbr\u003esem almennu fjárfestaverndarregluna, reglur um flokkun viðskiptavina, mat á hæfi og tilhlýðileika, upplýsingagjöf til viðskiptavina, besta framkvæmd, hagsmunarárekstra, skilyrðum fyrir töku fjármálagerninga til viðskipta, lýsingar, almenn útboð og fleira.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eRitið skiptist í 5 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003cbr\u003e1. kafli Inngangur\u003cbr\u003e2. kafli Þróun löggjafar á sviði verðbréfamarkaðsréttar - áhrif Evrópuréttar\u003cbr\u003e3. kafli Eftirlit með verðbréfamarkaðinum\u003cbr\u003e4. kafli Markaðir með fjármálagerninga\u003cbr\u003e5. kafli Fjárfestavernd\u003cbr\u003eHöfundar: Aðalsteinn E. Jónasson og Andri Fannar Bergþórsson\u003cbr\u003eFjöldi blaðsíðna: 456 bls.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52167773749408,"sku":null,"price":14990.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/C4287018-BDC0-4B43-9361-B0307CF55984.jpg?v=1736288594"},{"product_id":"endurheimt","title":"Endurheimt verðmæta við gjaldþrot 2. útg.","description":"\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eEndurheimt verðmæta við gjaldþrot 2.útg.\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eOkkur er sönn ánægja að tilkynna að Codex hefur gefið út 2. útgáfu af ritinu Endurheimt verðmæta við gjaldþrot - skýringar við reglur XX. kafla laga nr. 21\/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. eftir Viðar Má Matthíasson, rannsóknarprófessor við lagadeild Háskóla Íslands og fyrrverandi hæstaréttardómara. Um er að ræða nýja og endurskrifaða útgáfu af bók með sama heiti sem út kom á árinu 2000 og er fyrir löngu uppseld. Riftunarreglur fengu í aðalatriðum núverandi skipan með lögum nr. 21\/1991. Frá gildistöku þeirra hafa gengið nokkur hundruð dómar um efni þeirra ekki sízt eftir að mælt var fyrir um að reglurnar skyldu gilda við slit fjármálafyrirtækja, sbr. 4. mgr. 103. gr. laga nr. 161\/2002 um fjármálafyrirtæki. Við ritun 1. útgáfu bókarinnar frá 1998 til 2000 höfðu gengið rúmlega 100 dómar um efnið, en við slit þeirra fjármálafyrirtækja sem leiddi af hinni alþjóðlegu efnahagskreppu sem skall á haustið 2008 og lagðist með fullum þunga á íslenzkt efnahagslíf fjölgaði dómum um riftun ráðstafana samkvæmt XX. kafla gþl. verulega. Auk dóma tengdum efnahagskreppunni hafa gengið fjölmargir aðrir dómar um riftun ráðstafana þrotamanns, sem um er fjallað í ritinu. Með þeim mikla fjölda dóma sem gengið hefur frá fyrri útgáfu hafa ákvæði riftunarreglna XX. kafla um gjaldþrotaskipti o.fl. þannig skýrzt mjög og liggja ýmis mikilvæg hugtök nú ljósar fyrir en áður, t.d. hvernig hugtökin greiðsla og skuld eru notuð í 134. gr. laganna. Enn frekar hafa dómaframkvæmd og síðari norræn fræðiskrif skýrt auðgunarhugtak 142. gr. gþl., einkum að því leyti sem það skilur sig frá skaðabótaábyrgð og ákvörðun á fjárhæð skaðabóta.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cbr\u003eRitið skiptist í 7 kafla þar sem umfjöllunarefnin eru eftirfarandi:\u003cbr\u003e1. kafli Inngangur\u003cbr\u003e2. kafli Ýmis hugtök og skýringar á þeim\u003cbr\u003e3. kafli Skiptastjóri\u003cbr\u003e4. kafli Skuldajöfnuður við gjaldþrotaskipti\u003cbr\u003e5. kafli Almenn atriði um riftun og gjaldþrotaskipti o.fl.\u003cbr\u003e6. kafli Einstakar riftunarreglur í XX. kafla gþl.\u003cbr\u003e7. kafli Endurgreiðslureglur XX. kafla gþl. réttaráhrif riftunar\u003cbr\u003eHöfundur: Viðar Már Matthíasson\u003cbr\u003eFjöldi blaðsíðna: 485 bls.\u003cbr\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52167784530080,"sku":null,"price":15500.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/FullSizeRender_ec802ea2-5b1a-4e94-83f1-8bc091600ee9.jpg?v=1736288621"},{"product_id":"stettafelog-og-vinnudeilur","title":"Stéttafélög og vinnudeilur","description":"","brand":"Úlfljótur bóksala","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52320270155936,"sku":null,"price":9000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/files\/IMG-7417.jpg?v=1741613959"}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0463\/9431\/0816\/collections\/55D5C77C-3198-4535-B851-BF786EF7723A.jpg?v=1783535061","url":"https:\/\/www.boksala.ulfljotur.com\/collections\/meistara.oembed?page=2","provider":"Úlfljótur bóksala","version":"1.0","type":"link"}